Ađalfundur
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Kv.Stjórnin.
Reiđhöllin
Kv.Maggi Raggi
Myndir frá ćfingu hjá púkunum
Mikið gekk á í höllinni í dag, sumir foreldrarnir voru búin að vera sveit kvöldið áður við að gangsetja og dusta rykið af hjólunum eftir veturinn. Brösulega gekk hjá sumum að byrja og var sandurinn ekki þeirra besti vinur. En þegar leið á losnuðu þeir við verki úr skrokkunum og voru farnir að keyra fanta vel.
Strákarnir voru himinlifandi með daginn og óskuðu eftir því að þetta yrði gert vikulega. Við verðum bara að sjá hvernig þetta fer hjá hallanefndinni, en hún mun funda n.k, föstudag. Ég setti nokkrar myndir í albúmið.
Kv.Maggi Raggi
Krakkaćfing í dag, sunnudag kl 17.00
Kv.Maggi Raggi
Reiđhöll Sleipnis.
Motocrossdeild UMFS er búin að fá leyfi hjá Hestamannafélaginu Sleipni til að prófa hvort við getum verið með æfingar fyrir yngri kynslóðina (50-65cc) inni í reiðhöllinni til að byrja með,næsta vetur væri jafnvel hægt að keyra 85cc og 150cc. Eina sem þeir eru hræddir við er jarðvegurinn í höllinni, sem er skeljasandur og er ekki orðinn nægilega þjappaður fyrir stærri hjólin. Ég vil hvetja foreldra sem eiga krakka sem eiga hjól að koma og eiga skemmtilega stund saman, Ég er að vona að við gætum tekið fyrstu æfinguna á sunnudaginn n.k.
Kv.Maggi Raggi.
Félagsgjöld.
Við ætlum að hafa félagsgjöldin á sama verði og í fyrra s.s 4000kr. En ætlum að selja árskort í brautina á
6000kr. Því miður getum við ekki haft þetta eins og í fyrra,þetta stóð ekki undir kostnaði.
Best er að leggja inná reikn. hjá okkur 0152-26-9400 kt.560301-3670 og setja nafn og kt.
Endilega sendið mér email þegar þið eruð búin að leggja inná og ég redda félagsskírteinum.
maggiraggi9@gmail.com
Kv.Maggi Raggi
